Arnar Tómas Valgeirsson, eða Addi kylfa eins og hann er nú oftar kallaður vill ólmur breyta embættinu Collega í mun veigameira embætti innan Skólafélagsstjórnar, nú hef ég eftir honum: "Það þarf að gera embættið Collega mun veigameira embætti innan Skólafélagsstjórnar". Ekki er ljóst hvaðan hann fékk þessa flugu í höfuðið en mótframbjóðendur hans Birta Aradóttir og Marta "Collega" Ólafsdóttir hafa sterkar og ólíkar skoðanir á þessari hugmynd og svöruðu þær báðar eftir bestu getu þegar Varðhundarnir tóku þær í viðtal.
V: Hvað finnst ykkur um þessa hugmynd Arnars?
B: Mér finnst hún bara allt í lagi...
V: En þér Marta?
M: Júúújú, mér finnst þetta eiginlega bara fín hugmynd.
Heiftin og fyrirlitningin í þessum orðum segir sig sjálf og má Arnar búast við því að einhver kveiki í bílnum sínum í næstu viku. En það er ekkert vafamál að við eigum eftir að sjá blóðugan og harðan Colleguslag næsta föstudag.
No comments:
Post a Comment