Nú hafa úrslit 5. bekkjarfundarins verið ráðin og er það ljóst hverjir eru Inspectorskandídatar þessa ár. Á fundinum stóðu Sindri og Gísli uppi sem sigurvegarar (Samt var Gísli mun betri og á pottþétt eftir að vinna) og munu keppa um hylli lýðsins þarnæsta föstudag þar sem mesta spaðakeppni aldarinnar fer fram!!
Eftirtaldir buðu sig fram í embætti Inspectors Scholae:
Gísli Baldur (Meistari!!!) Gíslason (Kjóstu þennan!!)
Sindri "Ekki meistari" Stephensen (ef ég væri þú þá myndi ég ekki kjósa þennan!)
Pétur "Brandarakall" Grétarsson (ef ég væri þú þá myndi ég ekki kjósa þennan heldur!)
Viktor "?" Traustason (Góðir punktar sem hann kom með, en samt)
Allir frambjóðendur voru með sínar ræður og var Gísla áberandi best af því að hinir eru fífl!
Við hjá varðhundunum vorum svo heppnir að einn af okkar flugumönnum var á fundinum með falinn míkrófón og náðist smávegis af ræðu Gísla niður á blað.
15:10: Gísli Baldur stígur fyrstur upp í pontu. Hann er afslappaður og öruggur í fasi því að hann veit að hann á eftir að rústa þessum kosningum
15:10: Gísli gortar sig af fyrri afrekum í félagslífinu. Engin stefnumál komin strax. Ef þið kjósið mig þá kjósið þig þjón. Ég skil hann svo vel!
15:12: Embætti er dregið af orðinu ambátt; Gísli talar um sig sem þjón nemenda.
15:12: Ræðan er augljóslega besta ræða skammdegisins. Hann vill stofna nýjar nefndir sem sjá um sértæk verkefni innan Skólafélagsins
15:13: Gísli leggur áherslu á að peningur Skólafélagsins skili sér aftur til nemenda. Laumuskot á Fálkaorðurnar hans Bjössa.
15:14: Hann vill að inspector gangi í bekki fyrir stærri viðburða. Það er undarlegt ef að það þarf að senda sms á 15 manns í skólanum að það þurfi þá að senda á alla 900 í skólanum.
15:15: Vill breyta söngballinu í lokaball sem haldið verður eftir vorpróf og talar um að fá erlenda tónlistarmenn á böll. Ræðan er núna farin að flæða betur og hann búinn að tryggja sér Inspó fyrir löngu!
15:15: Ég vil sjá til þess að neminn verði haldinn tvisvar í mánuði. Kakóland ekki verið að stand sig í vetur. Hann vill bæta úrvalið í Kakólandi. HUGSJÓNAMAÐUR!
15:16: Vill stofna nefndir sem sjá um keppnir innan skólans á borð við stuttmynda- og lagasmíðakeppni.
15:16: Talar um sleepover og LAN. Fyrsti brandarinn í ræðunni. Salurinn springur og líka varðhundarnir.
15:17: Tvær ferðir: Skíðaferð í janúar og sumarferð í júní!
15:17: Spyr salin hvort þau hafi séð busaballsmyndina. Nokkrir janka. Hann er að fara tala um myndbandsnefnd. Vill stofna sér nefnd í kringum Videaums.
15:18: Síðasta stefnumál, talar um dvd-diskinn.
15:19 Endar ræðuna á MR-rúnki, skemmtilegustu böllin etc. Fær ágætt klapp. Bjössi opnar á spurningar.
Eins og augljóslega sést hafði Gísli þetta í vasanum allan tímann en til friðþægingar ætlum við að birta ræður Péturs og Sindra líka
Ræðan hans Péturs var stutt og léleg og hann hefði hvort sem er aldrei komist í Inspó!!! En allavegana reynum við Varðhundarnir að vera óhlutdrægir í skoðunum. Ræðan hans Pétur sökkaði og hljómaði svona:
15:29: Bjössi býður Pétur velkomijnn í pontu. Hann byrjar á góðum brandara.
15:30: Pétur byrjar á að spila frúin í Hamborg við gesti fundarins (greinilegt af hverju hann vann ekki)
15:31: Pétur uppsker dræman hlátur eftir misheppnaða tilraun til að spila frúin í Hamborg og tekur upp á því að herma eftir Sindra og gubbar, ekki á Bjössa heldur á Daða.
15:32 Allt í einu kviknar í Pétri og hann hleypur um allan salinn og reynir að kæfa eldtungurnar í fötunum hans.
15:33: Byrjar á stefnumálum. Heldur áfram um með brandara. og segir "Ég hata ykkur öll, ég er bara að þessu fyrir tjellingarnar!"
15:33: Bjössi reynir að taka míkrófóninn af Pétri en Pétur nær Birni í hálstak og það þarf 6 menn til að stía þeim í sundur.
Óþarft er að segja að Pétur var ekki næstum því jafngóður og Gísli.
Ræðan hans Sindra var einhvernvegin svona:
15:52 Sindri stígur í pontu.
15:53: Sindri byrjar á því að gubba framan í Bjössa Inspó til að sýna vanþóknun sína á eyðslu peningum Skólafélagsins
15:54: Talar um skítkast og Mr-andann. Byrjar hljóðlega að gráta og öskra að handahófi á gesti úr salnum.
15:54: Sindri segir brandara og uppsker hlátur.
15:55: Ræðan hans er greinilega samin af lömuðum broddgelti.
15:55: Varðhundar glíma við tækniörðugleika og missa samband við fundinn tímabundið, þessu verður kippt í lag innan stundar.
15:56: Sambandið komið aftur á. Ræðan hans Sindra komið á algjört flug. Hann gjörsamlega á salinn. Talar um Selið. hann er sannfærandi. En svo missir hann það þegar hann fær aðsvif og Daði Collega grípur hann.
Varðhundarnir vilja taka það skýrt fram að helsta hlutleysis er gætt þegar greinarnar eru unnar og Varðhundarnir vilja líka taka það fram að GÍSLI RÚLAR, KJÓSIÐ GÍSLA, ANNARS KÖSTUM VIÐ SKÍT Á YKKUR NÆST ÞEGAR VIÐ SJÁUM YKKUR!!!! FOKK SINDRA OG PÉTUR!!!
No comments:
Post a Comment