
Já kæru gestir viðtölin sem þið hafið verið að bíða eftir eru komin á síðu Varðhundanna, viðtöl við bæði Gísla og Sindra. fyrr í dag fóru Varðhundarnir og Inspóframbjóðendur á kaffihús og ræddu málin. Orðum eins og "já", "Nei" og "nefnilega" var hreytt í okkur Varðhundana og tókum við hvert eitt og einasta orð niður á blað (reyndar notuðum við diktafón en ykkur er ábyggilega svo fokking DMS) Hér er samtal okkar Varðhundanna við þá skrifað niður.
Fyrra viðtalið var við Sindra og hljómaði svo.
V: Jæja, Sindri, nú ert þú annarþeirra sem komust áfram í fimmtubekkjarforkosningunum í gær, hvernig líður þér eftir svo eftir fundinn?
S: Sææælll ég var eiginlega bara að pæla í að taka þetta á djellinu en þá kom hann Viktor og þá vissi ég að ég þyrfti að spýta í lófana, en já, hvernig líður mér? Bara fokking tussuvel!
V: Nú hefur þú verið viðriðinn ansi margt undanfarin 3 ár og maður með reynslu, heldurðu að sú reynsla eigi eftir að skila sér í Inspectorsembættinu? Það er að segja ef þú drullutapar ekki fyrir Gísla.
S: Já bleeeeessssar maður, maður er ekki að hata þessa reynslu sko (grætur úr hlátri), en ég er reyndari í flestum hlutum en hann Gísli og hann kann eiginlega bara ekkert varðandi félagsstörf eða uppsetningu á tímaritum, þetta var allt ég.
V: Flott, flott. Ef þú vinnur, sem er ótrúlega ólíklegt, hvernig hyggst þú gera andrúmsloftið "léttara" innan skólans?
S: Ætli maður slaki ekki bara aðeins, var nefnilega að pælíðí... (á þessum tímapunkti sá Sindri eitthvað sem fangaði athygli hans og hann skaust í burtu)
Þá var tekið viðtal við Gísla Baldur, og það hljómaði einhvernveginn svona.
V: Gísli Baldur, nú hefur þú verið ásakaður um stórfellt kosningasvindl á fimmtudaginn þar sem þú áttir að hafa fengið krakka frá leikskólanum Stóruborgir til þess að koma á fundinn og kjósa þig, hvernig viltu svara þessu?
G: Að svo stöddu get ég ekki tjáð mig um þetta mál þar sem þetta voru tæknileg mistök sem voru ekki að minni hálfu.
V: Nú allt í lagi. Seinni spurningin er hvernig hyggstu halda söngvaball eftir vorpróf þegar þú hefur hætt störfum sem Inspector á Dimmisio, ef þú verður kosin? (Vorprófin eru á eftir Dimmisio)
G: Á þessum tímapunkti get ég ekki tjáð mig frekar um þetta mál þar sem þetta er allt í undirbúningsstigi, og allt löðrandi í tæknilegum mistökum.
V: ... Allt í lagi, þriðja spurning. Ef þú yrðir kosinn Inspector, hvað myndir þú gera til þess að tryggja að vel yrði tekið á móti nýnemum og þeim veitt aukin tækifæri til að taka þátt í félagslífinu?
G: Eins og málin líta út núna í dag þá ætti ég að geta tjáð mig um þetta mál en því miður get ég það ekki vegna tæknilegra mistaka...
V: ...ætlarðu að svara einhverri spurningu í þessu viðtali?
G: Ég get því miður ekki tjáð mig um það að svo stöddu.
Þegar fréttaskúmarnir í Varðhundunum heyrðu þessi orð smygla sér út um munnvik Gísla Baldurs ákváðu þeir að leyfa þeim bara að vera lokaorð hans í bili.
Svona fóru þessi viðtöl og er það greinilegt að báðir frambjóðendur eru tilbúnir í æsilega kosningabaráttu sem hefst stundvíslega klukkan 08:10 á mánudagsmorgun.