Wednesday, March 5, 2008

Sigurjón dettur í lukkupottinn!


Já hann Sigurjón er nú aldeilis heppinn þar sem hann er eini frambjóðandinn í ár sem ætlar að bjóða sig fram í franska sjóræningjapimpinn, en á hverju ári eru oftast í það minnsta 5-12 manns sem ætla að bjóða sig fram í það embætti. Það lítur út fyrir að Sigurjón hafi verið heppinn og embættið týnst undir öllum þeim sjitt-embættum sem hægt er að bjóða sig fram í.

Sunday, March 2, 2008

Quaestors slagur


Ekki hefur mikið farið fyrir kandídötum í Quaestor Scholaris síðastliðna viku, þá fyrir utan í kosningagrein MT, þó svo að í ár eru þrír í framboði ólíkt síðustu þremur árum þar sem aðeins hafa verið tveir. Það sem er virkilega áhugavert er að tveir af þremur frambjóðendunum eru ári á eftir, þ.e.a.s. '89 módel og kynni það að hafa áhrif á atkvæðaskiptinguna, þar sem eldri kandídatarnir fá eflaust mun meira fylgi frá 5. bekk en yngri kandídatinn.Af þessu tilefni ákváðu varðhundarnir að leggja nokkrar spurningar fyrir kandídatana þrjá (Kandídatarnir eru Arnór Einarsson, Emil Þorvaldsson og Árni Freyr Snorrason).

Þetta er það sem Arnór hafði að segja.

V: Jæja Arnór, nú veit hvert mannsbarn að þú ert fjárhættuspilari mikill og hafa heyrst sögur um frækna sigra þína á sviði pókers en svo líka gífurleg ósigra. Heldur þú að fólk muni treysta því að þú "gamblir" ekki bara sjóð Skólafélagsins burt?

AE: Sko, þetta er bara líkindareikningur kallinn minn, og ég er búinn að þróa með mér kerfi sem getur ekki brugðist. Ég lofa því hér með að á fyrsta mánuði næsta skólaárs verða tekjur Skólafélagsins búnar að tvöfaldast, ef ekki þrefaldast ef þið kjósið mig.

V:Jámm, en þú ert núna að fara að bjóða þig fram á móti vel sjóuðum frambjóðanda sem hefur kannski reynsluna fram yfir þig, það er hann Emil Þorvaldsson, nú hefur hann boðið sig fram oftar en þú, ert þú hræddur við hann.

AE: Ef ég er hræddur við eitthvað þá er það hversu illa ég á eftir að rústa þessum kosningum.

V. Takk fyrir tímann þinn og gangi þér vel.

Það sem Emil hafði að segja.

V: Emil, þú hefur boðið þig fram í skólafélagsstjórn áður, sem Collega, er það ekki?

EÞ: Mikið rétt.

V: Hvernig datt þér í hug að bjóða þig fram aftur, nú til embættisins Quaestor?

EÞ: Sko ég var bara eitthvað í bankanum svo sá ég kellinguna með peninginn og ég bara.. díng, vissi hvað ég vildi gera á næsta ári.

V: Það sem hvatti þig til að bjóða þig fram sem Quaestor Scholaris var semsagt að sjá peninga?

EÞ: Já og kellingin.

V: Takk fyrir að svara þessum spurningum og gangi þér vel.


Það sem Árni hafði að segja.

V: Árni Freyr, núna ert þú heilu ári yngri en hinir mótframbjóðendur þínir, telur þú að reynsluleysi þitt á lífinu muni hamla þér í kosningabaráttunni?

ÁF: SÆÆÆLLL viltu ekki bara krossfesta mig í leiðinni eða, sko ég get bara sagt þér það að ég fokking rústaði Nóra í póker síðustu helgi og Emil á ekki skít í mig! Talandi um reynsluleysi, hefur þú einhverntíman glímt við 3 kóbraslöngur á meðan þú dansar á járnvír í 45 metra hæð? Nei ég hélt ekki.

V:...einmitt. Ef þú yrðir kjörinn gjaldkeri Skólafélagsins, hverju myndir þú breyta og hverju vildir þú halda áfram og bæta?

ÁF: OK ef það er eitthvað sem vantar meira af þá eru það hjólabrettarokkhighschool hljómsveitir, og ég var í einni þannig á söngkeppninni og það mætti nú alveg auka hjólabrettarokkhighschool hljómsveitafjöldann við þennan skóla. En það sem ég vildi breyta er kannski hversu erfitt það er að hitta á hjúkrunarkonu skólans, ég vildi breyta starfstíma hennar svo allir í skólanum gætu hitt hana hvenær sem er.

Saturday, March 1, 2008

HÖRÐ BARÁTTA!!


Já það verður seint sagt að baráttan upp á embætti skólaráðsfulltrúa verði óspennandi, þar sem tveir erkifjendur munu mætast í hatrömmum kosningaátökum næsta föstudag. Þessir erkifjendur eru engir aðrir en nýnemarnir Sindri Bergsson og Haraldur Franklín Magnús. Ótrúlegt verður að sjá hvernig fer og hvernig eftirleikurinn verður því að þeir eru nefnilega báðir í sama bekk! Á kosningavökunni í austurbæjarbíói á föstudag munu hlutir skýrast og koma í ljós hver hreppir heiðurinn sem felst í því að vera skólaráðsfulltrúi.

Varðhundarnir hvetja alla til þess að hlusta á kappræður frambjóðenda á fimmtudaginn næstkomandi, en munu þær án efa segja til um hvor sé hæfari frambjóðandi.

Við munum án nokkurs vafa sjá kröftuga kosningaherferð frá báðum aðilum og verður ekkert púður sparað. (heyrst hefur að Sindri sé kominn með Glitni á sitt band).

Friday, February 29, 2008

VIÐTÖLIN KOMIN Í HÚS!


Já kæru gestir viðtölin sem þið hafið verið að bíða eftir eru komin á síðu Varðhundanna, viðtöl við bæði Gísla og Sindra. fyrr í dag fóru Varðhundarnir og Inspóframbjóðendur á kaffihús og ræddu málin. Orðum eins og "já", "Nei" og "nefnilega" var hreytt í okkur Varðhundana og tókum við hvert eitt og einasta orð niður á blað (reyndar notuðum við diktafón en ykkur er ábyggilega svo fokking DMS) Hér er samtal okkar Varðhundanna við þá skrifað niður.

Fyrra viðtalið var við Sindra og hljómaði svo.

V: Jæja, Sindri, nú ert þú annarþeirra sem komust áfram í fimmtubekkjarforkosningunum í gær, hvernig líður þér eftir svo eftir fundinn?

S: Sææælll ég var eiginlega bara að pæla í að taka þetta á djellinu en þá kom hann Viktor og þá vissi ég að ég þyrfti að spýta í lófana, en já, hvernig líður mér? Bara fokking tussuvel!

V: Nú hefur þú verið viðriðinn ansi margt undanfarin 3 ár og maður með reynslu, heldurðu að sú reynsla eigi eftir að skila sér í Inspectorsembættinu? Það er að segja ef þú drullutapar ekki fyrir Gísla.

S: Já bleeeeessssar maður, maður er ekki að hata þessa reynslu sko (grætur úr hlátri), en ég er reyndari í flestum hlutum en hann Gísli og hann kann eiginlega bara ekkert varðandi félagsstörf eða uppsetningu á tímaritum, þetta var allt ég.

V: Flott, flott. Ef þú vinnur, sem er ótrúlega ólíklegt, hvernig hyggst þú gera andrúmsloftið "léttara" innan skólans?

S: Ætli maður slaki ekki bara aðeins, var nefnilega að pælíðí... (á þessum tímapunkti sá Sindri eitthvað sem fangaði athygli hans og hann skaust í burtu)

Þá var tekið viðtal við Gísla Baldur, og það hljómaði einhvernveginn svona.

V: Gísli Baldur, nú hefur þú verið ásakaður um stórfellt kosningasvindl á fimmtudaginn þar sem þú áttir að hafa fengið krakka frá leikskólanum Stóruborgir til þess að koma á fundinn og kjósa þig, hvernig viltu svara þessu?

G: Að svo stöddu get ég ekki tjáð mig um þetta mál þar sem þetta voru tæknileg mistök sem voru ekki að minni hálfu.

V: Nú allt í lagi. Seinni spurningin er hvernig hyggstu halda söngvaball eftir vorpróf þegar þú hefur hætt störfum sem Inspector á Dimmisio, ef þú verður kosin? (Vorprófin eru á eftir Dimmisio)


G: Á þessum tímapunkti get ég ekki tjáð mig frekar um þetta mál þar sem þetta er allt í undirbúningsstigi, og allt löðrandi í tæknilegum mistökum.

V: ... Allt í lagi, þriðja spurning. Ef þú yrðir kosinn Inspector, hvað myndir þú gera til þess að tryggja að vel yrði tekið á móti nýnemum og þeim veitt aukin tækifæri til að taka þátt í félagslífinu?

G:
Eins og málin líta út núna í dag þá ætti ég að geta tjáð mig um þetta mál en því miður get ég það ekki vegna tæknilegra mistaka...

V: ...ætlarðu að svara einhverri spurningu í þessu viðtali?

G: Ég get því miður ekki tjáð mig um það að svo stöddu.


Þegar fréttaskúmarnir í Varðhundunum heyrðu þessi orð smygla sér út um munnvik Gísla Baldurs ákváðu þeir að leyfa þeim bara að vera lokaorð hans í bili.

Svona fóru þessi viðtöl og er það greinilegt að báðir frambjóðendur eru tilbúnir í æsilega kosningabaráttu sem hefst stundvíslega klukkan 08:10 á mánudagsmorgun.

Vill breyta embættinu...


Arnar Tómas Valgeirsson, eða Addi kylfa eins og hann er nú oftar kallaður vill ólmur breyta embættinu Collega í mun veigameira embætti innan Skólafélagsstjórnar, nú hef ég eftir honum: "Það þarf að gera embættið Collega mun veigameira embætti innan Skólafélagsstjórnar". Ekki er ljóst hvaðan hann fékk þessa flugu í höfuðið en mótframbjóðendur hans Birta Aradóttir og Marta "Collega" Ólafsdóttir hafa sterkar og ólíkar skoðanir á þessari hugmynd og svöruðu þær báðar eftir bestu getu þegar Varðhundarnir tóku þær í viðtal.

V: Hvað finnst ykkur um þessa hugmynd Arnars?

B: Mér finnst hún bara allt í lagi...

V: En þér Marta?

M: Júúújú, mér finnst þetta eiginlega bara fín hugmynd.

Heiftin og fyrirlitningin í þessum orðum segir sig sjálf og má Arnar búast við því að einhver kveiki í bílnum sínum í næstu viku. En það er ekkert vafamál að við eigum eftir að sjá blóðugan og harðan Colleguslag næsta föstudag.


Thursday, February 28, 2008

Sjaldan dettur eplið langt frá eikinni...


Já það má með sanni segja að hann Bób... ehh einn varðhundurinn hafi vægast sagt verið stoltur þegar faðir hans kom í heimsókn þegar varðhundarnir voru sveittir að störfum við að skítkasta nemendur skólans og ærumeiða. Faðir hans sá vel unnin störf og hrósaði syni sínum fyrir vel kastaðan skít. Þessi mynd var tekin af feðgunum á góðri stundu. Jæja nú er nóg komið af þessu tilfinningavæli, nú þurfum við að fara að skíta á fólk sem á það EKKI SKILIÐ !1!""!!! VEIII!!!

Eitt sem gleymdist að segja...

... það er semsagt að þó að þessi síða sé skrifuð af nemendum í Menntaskólanum í Reykjavík, fjalli um nemendur í Menntaskólanum í Reykjavík og væri ekki til á Menntaskólans í Reykjavík, þá tengist hún ekkert Menntaskólanum í Reykjavík.

(Bara að koma þessu hingað svo það sé ekki hægt að reka okkur Varðhundana úr Menntaskólanum í Reykjavík!)