Ekki hefur mikið farið fyrir kandídötum í Quaestor Scholaris síðastliðna viku, þá fyrir utan í kosningagrein MT, þó svo að í ár eru þrír í framboði ólíkt síðustu þremur árum þar sem aðeins hafa verið tveir. Það sem er virkilega áhugavert er að tveir af þremur frambjóðendunum eru ári á eftir, þ.e.a.s. '89 módel og kynni það að hafa áhrif á atkvæðaskiptinguna, þar sem eldri kandídatarnir fá eflaust mun meira fylgi frá 5. bekk en yngri kandídatinn.Af þessu tilefni ákváðu varðhundarnir að leggja nokkrar spurningar fyrir kandídatana þrjá (Kandídatarnir eru Arnór Einarsson, Emil Þorvaldsson og Árni Freyr Snorrason).
Þetta er það sem Arnór hafði að segja.
V: Jæja Arnór, nú veit hvert mannsbarn að þú ert fjárhættuspilari mikill og hafa heyrst sögur um frækna sigra þína á sviði pókers en svo líka gífurleg ósigra. Heldur þú að fólk muni treysta því að þú "gamblir" ekki bara sjóð Skólafélagsins burt?
AE: Sko, þetta er bara líkindareikningur kallinn minn, og ég er búinn að þróa með mér kerfi sem getur ekki brugðist. Ég lofa því hér með að á fyrsta mánuði næsta skólaárs verða tekjur Skólafélagsins búnar að tvöfaldast, ef ekki þrefaldast ef þið kjósið mig.
V:Jámm, en þú ert núna að fara að bjóða þig fram á móti vel sjóuðum frambjóðanda sem hefur kannski reynsluna fram yfir þig, það er hann Emil Þorvaldsson, nú hefur hann boðið sig fram oftar en þú, ert þú hræddur við hann.
AE: Ef ég er hræddur við eitthvað þá er það hversu illa ég á eftir að rústa þessum kosningum.
V. Takk fyrir tímann þinn og gangi þér vel.
Það sem Emil hafði að segja.
V: Emil, þú hefur boðið þig fram í skólafélagsstjórn áður, sem Collega, er það ekki?
EÞ: Mikið rétt.
V: Hvernig datt þér í hug að bjóða þig fram aftur, nú til embættisins Quaestor?
EÞ: Sko ég var bara eitthvað í bankanum svo sá ég kellinguna með peninginn og ég bara.. díng, vissi hvað ég vildi gera á næsta ári.
V: Það sem hvatti þig til að bjóða þig fram sem Quaestor Scholaris var semsagt að sjá peninga?
EÞ: Já og kellingin.
V: Takk fyrir að svara þessum spurningum og gangi þér vel.
Það sem Árni hafði að segja.
V: Árni Freyr, núna ert þú heilu ári yngri en hinir mótframbjóðendur þínir, telur þú að reynsluleysi þitt á lífinu muni hamla þér í kosningabaráttunni?
ÁF: SÆÆÆLLL viltu ekki bara krossfesta mig í leiðinni eða, sko ég get bara sagt þér það að ég fokking rústaði Nóra í póker síðustu helgi og Emil á ekki skít í mig! Talandi um reynsluleysi, hefur þú einhverntíman glímt við 3 kóbraslöngur á meðan þú dansar á járnvír í 45 metra hæð? Nei ég hélt ekki.
V:...einmitt. Ef þú yrðir kjörinn gjaldkeri Skólafélagsins, hverju myndir þú breyta og hverju vildir þú halda áfram og bæta?
ÁF: OK ef það er eitthvað sem vantar meira af þá eru það hjólabrettarokkhighschool hljómsveitir, og ég var í einni þannig á söngkeppninni og það mætti nú alveg auka hjólabrettarokkhighschool hljómsveitafjöldann við þennan skóla. En það sem ég vildi breyta er kannski hversu erfitt það er að hitta á hjúkrunarkonu skólans, ég vildi breyta starfstíma hennar svo allir í skólanum gætu hitt hana hvenær sem er.
No comments:
Post a Comment